Lufsusögur

Friday, January 13, 2006

Leikur

Nú er ég alveg að tapa mér í gleðinni!!

Settu nafnið þitt í comment og.....

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..

16 Comments:

  • At 4:29 PM, Anonymous Anonymous said…

    hehe... þar sem ég er svooo dugleg að kommenta hérna - þá ætla ég að vera fyrst í þessum leik! tíhí... ;-) kv. Ásta selló

     
  • At 12:39 PM, Blogger Edilonian said…

    Já var það ekki lufsulíus minn;o)
    Hehe þú veist þetta eflaust allt fyrirfram þar sem við erum náttla eitt;o)Jæja hér ví gó..

    1. Lambada!
    2. Þú ert yndið mitt!
    3. Kúlusúkk
    4. Oda og Gorma
    5. Þú með fótbolta undir hendinni, innskeif, sparkandi í götuna, í von um að fá að vera með okkur Gunna í fótbolta. Ég í góðmennsku minni leyfði þér það og endaði það svo með því að Gunni gifti okkur:o)
    6. Lítur út eins og tígrisdýr en hegðar þér eins og kanína!!
    7. Hvaðan færðu alla þessa orku?? Helduru að þú hefðir verið dæmd ofvirk ef þú hefðir fæðst 10..nee 20 árum seinna???

     
  • At 1:08 PM, Anonymous Anonymous said…

    Ég ætla líka að vera með í þessum leik þínum.
    Kv Kristín

     
  • At 4:11 PM, Anonymous Anonymous said…

    Elsa líka=)

     
  • At 6:47 PM, Anonymous Anonymous said…

    Gaman að svona tilganglausu.... Bullaðu stelpa, BULLAÐU!!
    Kv. Valur

     
  • At 11:05 AM, Blogger Edilonian said…

    Jiii og svo er það Kristín mín!
    Þó að við séum líka eitt (er sko geðklofi) þá getur þú ekki vitað fyrirfram hvað ég segi því það er svoooo ótalmargt sem við eigum saman;o) og þar af leiðandi erfitt að velja eitt:o/ En reyni mitt besta!

    1. Engill
    2. Something in the way she moves/Bítlarnir
    3. Gullosturinn góði;o)
    4. Ég og þú!!! þarf að segja meira?
    5. Þar sem ég vil telja mér trú um að ég hafi verið svo bráðþroska, þá langar mig að segja þegar þú fæddist.. langar líka geðveikt að segja þegar löggan tók þig og við mamma komum og þú hágrátandi uppí sófa í svínagallanum!! En ef ég á að segja satt þá stendur þú mér í fersku minni kannski 2-3ja ára, í stuttum kjól útí garði á Langholtsveginum, hágrátandi með þinni dimmu djúpu rödd!!
    6. Ég ætti náttla að segja lamb.. en eitthvað segir mér að segja svín!! Kannski svínagallinn frægi??
    7. Hvaðan hefur familían það að við gerum allt snarvitlaust þegar við erum saman???:o/

     
  • At 11:19 AM, Blogger Edilonian said…

    Elsa pelsa pínupons...

    1. Litla fallega systir mín.
    2. Misirlou/Pulp fiction og Svartur Afgan!!
    3. Jarðaberjabragð
    4. Monster!!
    5. Þegar þú fæddist! Besta gjöf sem ég fékk....þá! Hehe og núna næstbesta;o)
    6. Kisulóra
    7. Ertu ennþá sár út af GK???

     
  • At 11:40 AM, Blogger Edilonian said…

    Valur...ekki hvetja mig til að bulla, þú gætir komið illa út!
    Dæmi hver fyrir sig...

    1. "Lítill" fugl í Hafnarfirði sem getur spilað á trommur og kveikt sér í sígó í leiðinn.
    2. Í kartöflugörðunum heima!!
    3. Kapteinn í kók.
    4. Leðurtöffarinn á Hróarskeldu!
    5. Innskeifur með hor í útskriftarveislunni hjá Ingimar!
    6. Letidýr, ekki spurning.
    7. Ertu fyrir stráka eða stelpur??

     
  • At 1:25 PM, Blogger Frú Elgaard said…

    Hæ edda,
    ég vil gjarnan vera með!
    kveða Kata Elgaard

     
  • At 5:38 PM, Blogger Edilonian said…

    Nei Kata! Hæ:o) Velkomin aftur í "bloggheima"! Þá getur maður farið að fylgjast með þér aftur.
    Kata...

    1. Ljúf með (næstumþví)ljósa lokka.
    2. Pixies...
    3. Kjötsúpuvodkabragð:o/
    4. Innocent when you dream!
    5. Á Hróarskeldu 2004 í pollagalla með bakpoka, kona skrítna Danans sem var í hvítri skyrtu með bindi og talaði íslensku!
    6. Trippi
    7. Langar þig að gista á ganginum hérna hjá mér í Berlín??;o)

     
  • At 10:34 AM, Anonymous Anonymous said…

    Ví,, gerðu mig gerðu miiiiig.
    Kv. Helena

     
  • At 11:11 AM, Anonymous Anonymous said…

    gerðu mig,,,,gerðu mig,,,

     
  • At 11:14 AM, Anonymous Anonymous said…

    hmm,, sorry, ætlaði nú ekki að vera alveg svona æst,, sá bara ekki að ég var búin að panta einu sinni,, það er ekki hægt að gera undo, annars myndi ég gera það.
    Kv. H

     
  • At 9:30 PM, Blogger Móa said…

    móa

     
  • At 2:59 PM, Blogger Edilonian said…

    Jájájá Helena nú geri ég þig..víúvíú;o)

    1. GæðaHelena.
    2. Total eclipse of the heart og þar sem þú ert geðklofa þá líka America með Rammstein:o/
    3. Súkkulaðinúpó!!
    4. "Oh Lord, won´t you buy me"
    5. Á kynningarsameiningarfundi VST og Raftákns, þar sem við skoðuðum ykkur og þið skoðuðu okkur. Mér fannst þú sætust af þeim öllum!
    6. Ofvirk Panda!
    7. Hegðar maður sér eins þegar maður er dáleiddur??

     
  • At 3:12 PM, Blogger Edilonian said…

    Og Móa mín:o)

    1. Berlínarstoð mín og stytta.
    2. A King at night/Bonnie prince...
    3. Holidays.. sem við skulum fá okkur á bjútíkvínkvöldinu!!
    4. Kelling!!
    5. Matarboðið á Laugarveginum forðum daga þar sem Óli hámaði í sig fínu súkkulaðimúsina eins og Royal búðing, klósettið var úti og við drukkum ótæpilega mikið þannig að ég man bara ljóst eftir þér fyrripart kvöldsins!!!
    6. Lísudýr í Undralandi!
    7. Hvenær eigum við að stofna "Crazy in love"??

     

Post a Comment

<< Home