Lufsusögur

Tuesday, November 01, 2005

Víúvíú fékk hjól í dag!! Var samt búin að kaupa mér hjól en fannst það samt svo ljótt þannig að ég "gaf" Óla bara það og keypti mér "nýtt". Náttla ekki nýtt þegar það er frá því fyrir stríð liggur við, einhver svona antík!! Sé ekki eftir því ennþá því hjólið hans Óla er svo klikk eitthvað, hnakkurinn situr svo asnalega og keðjan slitin svo það er meira að segja bara ónothæft núna:o/ Svo kemur í ljós hvort mitt virki. Annars keypti ég geggjað hjól handa ALÓ um daginn. Mig langaði eila sjálfri í það. Það er svona hjól eins og ég átti þegar ég var lítil. Fékk það í 9 ára afmælisgjöf, glæsplunkunýtt, vínrautt og glansandi. Því var stolið daginn eftir! Þvílík sorg og táraflóð:o( Mig hefur dreymt um svoleiðis síðan, en lifi nú drauminn í gegnum dótturina! hahaha klént! En nú er allavega fjölskyldan komin með hjólaflota sem við ferðumst nú á, hjólandi spólandi!

2 Comments:

  • At 9:27 PM, Anonymous Anonymous said…

    svaka fínt

     
  • At 8:40 AM, Anonymous Anonymous said…

    Jeiiii...ekki nema örfáar mínútur að hjóla til okkar í catan

     

Post a Comment

<< Home