Lufsusögur

Thursday, December 15, 2005


Halló halló! Æm bakk!! Jújú Kristín, tölvan komin í lag;o) Ahh en ég er bara alveg dottin úr gírnum, veit ekkert hvað ég á að segja!! Ég er náttla alltaf að gera eitthvað sem ég hef aldrei gert áður, en það er ómögulegt að tíunda það allt eftir margar vikur!! Ég geri allavega mitt besta;o) Að vísu komst tölvan í lag fyrir viku síðan, en ég er bara búin að vera svo ótrúlega bissí að ég hef ekki haft tíma til að setjast niður og skrifa lítið bréf:o/ Annríkið fer að verða eins og heima á Klakanum... hvort sem það er vont eða gott??Látum okkur nú sjá.. helstu fréttir?? Já við fengum okkar fyrsta gest hingað í nóvember. Pabbi vippaði sér yfir frá Svíþjóð og dvaldi hjá okkur í viku áður en hann flutti, alkominn, heim til Íslands. Það var mjög skemmtilegt og við höfðum tækifæri til að skoða okkur um hérna í Berlín og fara út að borða. Því eins og ég segi, þá förum við voða lítið út fyrir litla hverfið okkar:-o Þannig að við eyddum vikunni mestmegnis í lestum, göngutúrum og veitingastöðum. Pabbi keypti sér stafræna myndavél og við tókum ca. 200 myndir(flestar í lestum og á veitingastöðum hehe) þannig að ég fæ myndir frá honum svo ég geti sýnt ykkur. Við erum ennþá myndavélalaus:o(Við fórum í 1.des. boð á vegum sendiráðsins. Það var náttla bara æði og með hefðbundnu sniði...þar sem Íslendingar koma saman í frítt vín endar það bara á einn veg.. allir blindfullir!! Mjög gaman;o) svo ekki meir um það:o/Síðastliðinn laugardag voru "Litlu jólin" hjá Fíber haldin á æðislegu barnakaffihúsi, með íslenskum jólalögum, kvæðum eftir Jóhannes úr Kötlum og pakkaleik. Anna Líf fékk í sínum pakka eiturgrænan Trabant með bílnúmerinu DDR 1989. Fjölskyldubílinn okkar!! hahaOg svo síðast en ekki síst, jiii við fórum í ferð á sunnudaginn með TU (Technischen Uni) til Wittenberg. Það var guðdómlega gaman!! Þetta er semsagt staðurinn þar sem grunnur siðaskiptanna var lagður 1517. Þar sem Martin Luther skrifaði kenningarnar þarna 95, turninn og kirkjan þar sem hann predikaði og risastórt safn þar sem hann lifði og bjó. Svo fórum við á DDR safn sem var æði. Íbúðir settar upp með öllu tilheyrandi frá mismunandi tímabilum og konurnar sem "gæduðu" okkur í gegnum safnið voru líka DDR, hahaha eða svoleiðis, svona gamlar, hallærislegar í bleikum peysum. En æðislegar:o)Og svo enduðum við á ótrúlega rómantískum og kósí jólamarkaði með hringekjum, parísarhjóli, Glühwein og súkkulaðihúðuðum eplum, mmm ógisslega góð!Þetta er svona í grófum dráttum það merkilega sem við höfum verið að gera. Núna erum við á kafi í jólastússi og svoleiðis, kyssa og knúsa vini okkar bless sem eru að fara til Íslands...úff maður fær nú alveg í magann, það fara allir heim um jólin og manni finnst maður bara vera einn eftir:o/ Manni langar nú ansi mikið heim... en samt ekki..veit ekki hvort ég sé tilbúin í það!!En við fáum nú gesti um jólin, tengdapabbi og tveir unglingsbræður Óla koma og verða hjá okkur yfir jólin. Þetta verða rosa öðruvísi jól.. að vera hérna úti í Berlín og með tengdapabba og Co, sem ég hef aldrei gert, og Óli hefur held ég bara aldrei verið með bræðrum sínum á aðfangadag heldur!! Við hlökkum mikið til að fá þá:o)

2 Comments:

  • At 1:40 PM, Anonymous Anonymous said…

    hæhæ, Elsa og mamma hér. Það er gott að heyra að það er nóg að gera hjá ykkur en hvað þýðir DDR?=) Hérna er allt fínt að frétta. það er minna en vika í jólin og maður á eftir að gera mest allt, nema mamma kannski hún er búin að kaupa allar jólagjafirnar(og orðin blönk hehe). Ég er ekki einu sinni komin í jólaskapið en það kemur. Það á eftir að vera skrýtið að hafa ykkur ekki um jólin, ég held að við verðum með Magga og Riinu og Helga sæta um jólin. Við heyrumst fljótlega (allavega um jólin) =) kysstu Önnu Líf frá okkur
    ps. ég komst inn í skólan=)

     
  • At 2:25 PM, Blogger Edilonian said…

    Hæhæ Elsa!
    Alltaf gaman að heyra í þér:o)
    Og vá.. til hamingju með að komast í skólann, algjört æði!
    DDR er Deutsche Demokratische Republik=Þýska alþýðulýðveldið Austur-Þýskaland 1949-1990.
    Þegar landinu var skipt í 2 hluta,austur(sósíalismi) og vestur ("kapítalismi"). Samanber Berlínarmúrinn(1961-1989). Og þegar ég tala um að eitthvað sé DDR, þá er það austur-þýsk hönnun;o)
    Já þetta verða skrýtin jól fyrir alla heyrist mér,allir á öðrum stöðum!
    En við heyrumst um jólin.
    Gangi ykkur vel og bið að heilsa:o)

     

Post a Comment

<< Home