Lufsusögur

Monday, April 17, 2006

Blóm frá herramanni!


Gleðilega páska!! Ja eða allavega það sem eftir er af þeim.
Við erum búin að hafa það rosa gott í páskafríinu, afslappelsi og kósíheit.
Svo mikið afslapp að ég hef ekki einu sinni haft fyrir því að skrifa eina og eina línu hérna á bloggið mitt.
En samt sem áður er alltaf nóg að gera.
Sýningin á þriðjudaginn gekk mjög vel og var þetta hið skemmtilegasta kvöld sem endaði á barnum til að verða fimm held ég bara:o/Hún gekk reyndar svo vel að mér var boðið hlutverk í Shakespearleikriti sem ég varð að hafna vegna komu minnar til Íslands í sumar:o( En kem svo kannski sterk inn sem eitt af þrem hlutverkum í leikriti sem byrjað verður að æfa í haust, þ.e.a.s. ef styrkur fæst fyrir því. Og hef ég það fyrir víst að Þórunn nokkur muni þá sjá um búninga og leikmynd;o) Spennó! Alltént þá fór miðvikudagurinn í veikindi og kósíheit, ehemm:o/

Á fimmtudaginn bauð sú ungverska af þýskunámskeiðinu okkur fjórum stelpum í hádegismat sem varði nánast alveg fram á kvöld. Þar sem við komum allar frá sitthvoru landinu þá getum við eytt ansi miklum tíma í umræður um hvernig hinu og þessu sé háttað í heimalöndum okkar sem mér þykir alveg endalaust áhugavert. Eflaust alveg týpiskt en gaman samt sem áður;o)
Á föstudagskvöldinu kíktum við á grasekkjuna Þórunni og spiluðum alveg stórskemmtilegt leynilögregluspil með yngri kynslóðinni.
Daginn eftir fórum við í ferð, tjaa ég segi nú ekki út fyrir Berlín því þetta er hverfi í Berlín, en til staðar sem heitir Köpenick og er alveg eins og smábær sem á ekkert skylt við Berlín eins og við þekkjum hana. Veðrið var alveg ótrúlega gott, sól og frekar hlýtt og alltaf eitthvað nýtt.....hahahaha rím...að sjá. Í gær var svo alveg frábært boð hjá íslendingunum á Stargarder þar sem var hið myndarlegasta hlaðborð og fjölbreyttasta fólk:o)

3 Comments:

  • At 7:03 PM, Anonymous Anonymous said…

    Gleðikona í háska...nei meina, gleðilega páska!
    Fær Leoncie blogsíðan okkar ekki þann heiður að vera linkur hjá þér?
    Guð hvað verður gaman að sjá ykkur!!!
    Kv. Katrín patrín og liðið

     
  • At 1:15 PM, Anonymous Anonymous said…

    Gleðilegt sumar allir Berlínar búar
    kveðja Svala systir

     
  • At 11:17 AM, Blogger Edilonian said…

    Takk takk gæskurnar mínar:o)
    Leoncie fær sinn sess á síðunni von bráðar;o)
    En núna ætla ég að leggja mig eða fara í borðtennis og blogga bara seinna;o)

     

Post a Comment

<< Home