Lufsusögur

Monday, June 26, 2006

Ellikelling bankar á dyrnar!

Löng helgi liðin í obboslega góðu veðri:o)
Meðal annars fórum við Anna Líf og Helgi Ilmari, litli frændi, í Húsdýragarðinn þar sem við eyddum öllum laugardeginum og hoppuðum og skoppuðum á trampolínunum og ég held að ég hafi hlegið mest. Á sunnudeginum fórum við systurnar, Svala og ég, með dæturnar í sund og dóluðum þar í marga tíma og útkoman er eldrautt andlit:o/

En það sem mig langaði mest að segja til að létta á hjartanu er bæjarferðin sem við Svala fórum í á laugardagskvöldið. Það var búið að vera svo mikið að gera hjá mér um daginn og kvöldið að ég var engan veginn tilbúin að fara heim að sofa. Ég kem því Aló í pössun og ákvað að fara út með Svölu, bara rétt að kíkja þar sem ég hef ekkert farið síðan síðasta sumar. En bara rólegt sko. Við fórum eftir 1-2 hvítvínsglös eða svo á röltið niðrí bæ og kíktum inná hina ýmsu skemmtistaði. Heim komum við um 3-4 leytið í brjáluðu þunglyndi. Bærinn var stútfullur!! Og stútfullur af UNGlingum!!
Og ég þekkti ekki hræðu:o/ Mikil vonbrigðum þar sem ég var búin að sjá fyrir mér skemmtisumarið mikla!!!
hehehe nei kannski ekki alveg. En ekki er öll von úti enn því eins og ég sagði vorum við ekki búnar að drekka neitt(allavega ekki af viti!!) og það hef ég ekki reynt né gert mér síðan við frænkurnar gerðum heiðarlega tilraun til þess hér um árið og höfum aldrei skemmt okkur eins illa!!
Svo er maður bara orðinn gamall!! Eða hvað:o/

7 Comments:

  • At 6:59 PM, Anonymous Anonymous said…

    svona svona.
    þú reynir bara aftur.
    hvítvín er gott.

     
  • At 8:47 AM, Blogger Edilonian said…

    Hehe já, hvítvín er gott;o)

     
  • At 11:52 AM, Blogger Móa said…

    allt liðið er enn í berlín, en er á leiðinni...no worries.

     
  • At 1:56 PM, Blogger Edilonian said…

    jeminn eini bara vika!!

     
  • At 2:26 PM, Anonymous Anonymous said…

    sumir bara búnir að finna afmælisgjöf handa sumum...;)

     
  • At 8:15 PM, Anonymous Anonymous said…

    Hvað á að gera þessa helgi.
    Láttu heyra í þér skvísa.
    Heiða

     
  • At 3:04 PM, Blogger Edilonian said…

    AMMÆLISGJÖF!!! Hmmm
    Annars er ég að fara útá land á morgun í grill, siglingu og fleira:o)
    þar til næst........

     

Post a Comment

<< Home