Lufsusögur

Thursday, August 30, 2007

Heimska mannsins....

að láta ekki brenna sig og jarða í lítilli krukku sem tekur eflaust tíu eða tuttugu sinnum minna pláss en kisturnar???

Tuesday, August 21, 2007

Krypplingarnir á Reykhólum


Fór á ættarmót á Reykhólum. Komum um miðja nótt, í kolniðarmyrkri, hífandi roki og rigningu. Hitinn var 7 gráður um daginn svo það má reikna með að það hafi verið eitthvað kaldara þarna um nóttina:o/ Eins og sönnum Vestfirðingum, galdramönnum og kynjakonum sæmir þá náðum við að tjalda í þessum ósköpum með okkar yfirnáttúrulegu kröftum. Með okkur í för voru tvö útlendingsgrey sem voru að byrja ferð sína um Ísland og leist þeim engan veginn á blikuna! Ég hefði nú sagt þeim að það væri nú ekki beinlínis gott veður á Íslandi og svona frekar kalt....en á þessu hefðu þau engan veginn átt von á!!

Stolt okkar sem vestfirskum hetjum var svo kollvarpað daginn eftir þegar súlur tjaldanna brotnuðu í hópum, tjaldvagninn míglak og við þurftum að sofa inni næstu nótt:o/

Alltént var þetta alveg stórskemmtileg helgi því fjölskyldan er öll svona skemmtileg eins og ég;o)Tókum gamla og góða slagara eins og Úlpan mín, Þriðjudagskvöld, Birgir þú átt von og fleira og fleira! Fórum í grísaleikinn stórskemmtilega þar sem sköpunargleðin er við völd, dönsuðum, grilluðum, drukkum og rifumst...og ég malaði Gaua bró í körfubolta eins og sést á meðfylgjandi mynd sem mér finnst svo óendanlega fyndin....en er kannski ein um það??

Jæja Þórunn, bollinn er orðinn gamall;o)

Thursday, August 09, 2007

Nýi bollinn minn..


og tónleikar með hljómsveitinni Zodogan sem var hryllilega hressandi og kærustur hljómsveitarmeðlimanna voru aðalgrúppíurnar! Minnti mig á "gömlu" dagana þó ég náttla þverneiti fyrir það að vera orðin gömul:-o
En Gaui bró fór alveg á kostum og hafði ég unun af því að horfa á hann þó svo ég hefði ekki heyrt bofs í tónlistinni. Mæli meðissu!