Lufsusögur

Tuesday, September 23, 2008

Afmæli

Svo gleymdi ég alveg að segja að Nick Cave átti afmæli í gær og af því tilefni fékk ég mér ís með súkkulaðisósu. Og setti svo karamellusósu líka í tilefni af því að jafnaldri hans Haukur frændi átti líka afmæli í gær;o)

Monday, September 22, 2008

Allt er þegar þrennt er;o)


Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að þriðji ísbjörninn hafa numið hér land eins og manninum þarna dreymdi en málið var þaggað niður og ísbjörninn bara skotinn á stundinni og líkinu látið hverfa til að koma í veg fyrir þriðju eins og vitleysu og með fyrstu tvo.
En ég náttla trúi þessu ekki þar sem pabbi minn segir að maður eigi ekki að trúa neinu nema sjá það sjálfur:-o